Fulltrúaráðsfundur 14. febrúar

Miðvikudaginn 14. febrúar kl 17:00-19:00 verður fundur hjá fulltrúaráði LÍS.

Í fulltrúaráði LÍS sitja 2 fulltrúar frá hverju aðildarfélagi LÍS. Að LÍS standa átta aðildarfélög sem eru í forsvari fyrir stúdenta við Háskólann á Akureyri, Háskólann á Bifröst, Landbúnaðarháskóla Íslands, Listaháskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Hólum, Háskóla Íslands og fyrir íslenska stúdenta sem stunda nám erlendis.

Fulltrúaráðsfundir eru skv. lögum LÍS opnir öllum stúdentum og hvetjum við alla háskólanema með áhuga á hagsmunabaráttu stúdenta að sækja fundina. Að þessu sinni er fundurinn haldinn í Borgartúni 6, 4. hæð. Fulltrúar í fulltrúaráði geta nálgast fundargögn á heimasvæði fundarins.

Athygli er vakin á því að helsta umræðuefni fundarins er kynning á fundargögnum fyrir Landsþing LÍS og því eru allir þingfulltrúar hvattir til þess að mæta.

  1. Fundargerðir síðasta fundar borin upp til samþykktar.

  2. Tillaga að breytingu á starfshlutfalli starfsmanna.

  3. Kynning á nýjum samstarfssamning LÍS og BHM

  4. Kynning á fundargögnum fyrir Landsþing 2024 

  5. Önnur mál

Previous
Previous

BHM og LÍS endurnýja samstarfssamning

Next
Next

Opið fyrir framboð í framkvæmdastjórn LÍS 2024-2025!