Vilt þú vera með?

------------      Scroll down for the english version      ------------

ATH frestur hefur verið framlengdur til miðnættis föstudaginn 7. september!

Hefur þú áhuga á félagsstörfum? Brennur þú kannski fyrir hagsmunabaráttu stúdenta? Langar þig til að hafa áhrif? Viltu starfa með stúdentum frá öllum háskólum landsins?

Landssamtök íslenskra stúdenta auglýsa eftir áhugasömum einstaklingum í nefndir samtakanna en þær eru gæðanefnd, lagabreytinganefnd, fjármálanefnd, alþjóðanefnd, markaðsnefnd og jafnréttisnefnd.

 

Hvað eru LÍS?

Landssamtök íslenskra stúdenta, eða LÍS, voru stofnuð 3. nóvember 2013 og eru samtök háskólanema á Íslandi sem og íslenskra háskólanema á erlendri grundu. LÍS eru regnhlífarsamtök og standa að þeim átta aðildarfélög sem eru í forsvari fyrir stúdenta við Háskólann á Akureyri, Háskólann á Bifröst, Landbúnaðarháskóla Íslands, Listaháskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Hólum, Háskóla Íslands og fyrir íslenska stúdenta sem stunda nám erlendis. LÍS er því í forsvari fyrir rúmlega 20 þúsund íslenskra stúdenta.

Lesa má meira um samtökin hér: http://www.haskolanemar.is/about/ Fyrir nefndum LÍS fara sex af átta meðlimum í framkvæmdastjórn; gæðastjóri, varaformaður, fjármálstjóri, alþjóðaforseti, markaðsstjóri og jafnréttisfulltrúi.

 

Hvernig sæki ég um?

Sótt er um hér: http://www.haskolanemar.is/umsoknir-i-nefndir/ eða með því að senda tölvupóst á lis@haskolanemar.is.

Opið er fyrir umsóknir frá 27. ágúst til og með 7. september. Í umsókn skal koma fram: Nafn, nám, reynsla af félagsstörfum og/eða önnur reynsla sem gæti nýst og stutt lýsing á ástæðu umsóknar.

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um þær lausu stöður sem í boði eru. Nánari upplýsingar um nefndirnar og laus sæti í hverri nefnd er að nálgast hér að neðan.

VILT ÞÚ VERA MEÐ_ (1).png

 

Gæðanefnd

Brennur þú fyrir eflingu íslensks háskólaumhverfis? Þá er gæðanefndin fyrir þig. Nefndin starfar náið með fjölbreyttum einstaklingum og stofnunum á landsvísu sem vinna að eflingu gæða háskólanáms svo sem Rannís og Gæðaráði íslenskra háskóla. Mörg ný og skemmtileg verkefni eru á döfinni starfsárið 2018-2019 en nefndin mun meðal annars skipuleggja og halda ráðstefnu í október í fyrsta sinn, kynna nýja stefnu LÍS um gæði í íslensku háskólasamfélagi fyrir viðeigandi hagaðilum og stúdentum og aðstoða við gerð spennandi hlaðvarps sem mun líta dagsins ljós í október. Öll verkefnin hafa það að markmiði að auka þekkingu á gæðamálum meðal íslenskra stúdenta sem og að efla þátttöku þeirra í gæðastarfi háskólanna. Um er að ræða einstakt tækifæri til að efla gæði háskólanáms á Íslandi. Við óskum eftir þremur metnaðarfullum og vinnusömum einstaklingum í nefndina.

Viljir þú vita meira getur þú haft samband við Aldísi Mjöll Geirsdóttur, gæðastjóra LÍS. Netfang: aldismjoll@gmail.com.

 

Lagabreytinganefnd

Lagabreytinganefnd LÍS sér um endurskoðun á lögum og verklagi LÍS á hverju ári. Tryggja þarf að lögin séu í samræmi við starf samtakanna og einnig að samtökin fylgi þeim í hvívetna. Lagabreytinganefnd sér um gerð á breytingartillögum sem lagðar eru fyrir fulltrúaráð LÍS. Séu tillögurnar samþykktar þar fara þær fyrir landsþing LÍS sem er æðsta ákvörðunarvald samtakanna. Möguleikarnir til þess að bæta skilvirkni og starf samtakanna eru því miklir með þátttöku í lagabreytinganefnd. Óskað er eftir einstaklingum sem hafa áhuga á lögum og lagabreytingum. Lögfræðiþekking er ekki skilyrði en þó kostur. Laus sæti í nefndinni eru fjögur.

Viljir þú vita meira getur þú haft samband við Teit Erlingsson, varaformann LÍS. Netfang: teiturerl@gmail.com.

 

Fjármálanefnd

Fjármálanefnd sér um utanumhald fjármála LÍS auk fjáröflunar samtakanna og helstu viðburða. Nefndin sér um að byggja upp samstarf samtakanna við fyrirtæki í gegnum þjónustusamninga eða styrktarveitingu sem og gerð styrkjaumsókna hjá stærri fyrirtækjum. Ár hvert halda samtökin landsþing þar sem fulltrúar frá öllum aðildarfélögum LÍS koma saman. Það er því stórt verkefni nefndarinnar að fjármagna þingið með styrkjum. Einnig eru mörg önnur spennandi verkefni í vændum, svo sem fimm ár afmæli LÍS. Leitað er að þremur áhugasömum aðilum til að sitja í fjármálanefnd auk fjármálastjóra.

Viljir þú vita meira getur þú haft samband við Kristínu Þóru Jónsdóttur, fjármálastjóra LÍS. Netfang: kristinj16@bifrost.is.

 

Alþjóðanefnd

Alþjóðanefnd LÍS sinnir alþjóðlegum skuldbindingum LÍS, sækir fróðleik til alþjóðlegra stúdenta og færir þann fróðleik heim til Íslands. Á starfssárinu 2018-2019 kemur alþjóðanefnd til með að sinna undirbúningsvinnu og úrvinnslu í kringum alla alþjóðlega viðburði sem fulltrúar LÍS sækja, ásamt því að vinna með öðrum nefndum samtakanna að verkefnum sem snúa að samliggjandi málefnum. Alþjóðanefnd mun vinna samviskusamlega við uppfærslu á alþjóðastefnu LÍS yfir starfsárið. Laus sæti í nefndinni eru fjögur.

Viljir þú vita meira getur þú haft samband við Sölku Sigurðardóttur, alþjóðaforseta LÍS. Netfang: salka15@ru.is

 

Markaðsnefnd

Hlutverk markaðsnefndar er að koma samtökunum á framfæri í samfélaginu og þá sérstaklega innan háskólasamfélagsins. Nefndin hefur umsjón með heimasíðu samtakanna, helstu miðlum og prenti. Reynsla á Markaðsstörfum er mjög mikill kostur, einnig reynsla af grafík, margmiðlum og ritstörfum. Markaðsnefnd sér einnig um skipulagningu og framkvæmd viðburða samtakanna. Viðburðir þessir varða málefni stúdenta; Landsþing LÍS, Gæðaráðstefna, 5 ára afmæli LÍS ásamt fleirum skemmtilegum uppákomum og fleira.

Viljir þú vita meira getur þú haft samband við Söndru Rún Jónsdóttur, Markaðsstjóra LÍS. Netfang: sandrarjons@gmail.com



 

Jafnréttisnefnd

Jafnréttisnefnd heldur utan um verkefni og viðburði LÍS sem tengjast jafnréttismálum. Nefndin ber ábyrgð á því að jafnrétti sé framfylgt í öllum málum og skal vera framkvæmdarstjórn LÍS til ráðgjafar í störfum og málefnum stjórnar.
Starfsárið verður mjög viðburðarríkt þar sem jafnréttisstefna LÍS, fyrsta jafnréttisstefna sem allir stúdentar á Íslandi og íslenskir stúdentar erlendis koma að, verður fullskrifuð. Nefndin mun eiga í samráði við jafnréttisnefndir háskólanna og taka þátt í öðrum verkefnum.

Viljir þú vita meira getur þú haft samband við Sonju Björgu Jóhannsdóttur, jafnréttisfulltrúa LÍS. Netfang: sonjaj14@ru.is


 

------------      English ------------

Deadline has been extended until September 7th!

Are you interested in social activities? Are you enthusiastic about fighting for students’ rights? Do you want to have an influence? Do you want to work with students from all over the country?

The National Union of Icelandic Students (LÍS) is looking for interested personnel for the Unions’ committees. The committees are: the Quality Assurance Committee, Legislative Committee, Finance Committee, International Committee, Marketing Committee, Equal Rights Committee and Events Management Committee.


 

What is LÍS?

The National Union of Icelandic Students, or LÍS, was founded November 3rd, 2013, and is an union for students of higher education in Iceland and for Icelandic students abroad. LÍS is an umbrella organization within which there are eight member unions that represent the students of the University of Akureyri, Bifröst University, the Agricultural University of Iceland, Hólar University College, University of Iceland and for Icelandic students that study abroad. LÍS therefore represents about 20 thousand students.

Further information can be found here:  http://www.haskolanemar.is/english/

 

 

How do I apply?

Applications are open from August 27th until September 7th. Applications go through here: http://www.haskolanemar.is/umsoknir-i-nefndir/ or by email to lis@haskolanemar.is. The application should include: Name, studies, experience of social activities and/or other relevant experience and a few sentences describing the application motivations.

We encourage individuals of every gender to apply for the available positions.

Further information about the committees and number of available seats below.

 

Quality Assurance Committee

Do you burn for the improvement of the Icelandic system of higher education? Then the Quality Assurance Committee is something for you. The Committee is responsible for the engagement of students in quality assurance nationwide and works closely with other units and institutions that work on the improvement of the quality of higher education. E.g. the Icelandic Centre for Research (RANNÍS) and the Quality Council of Icelandic Universities.
The Committe has many exciting projects coming up in this working year, but the Committee will among other things organise a conference for the first time, introduce LÍS’ new Quality Policy to appropriate units and instituations and assist with the making of a new and exciting podcast which will be launched in October. All projects have a goal of promoting knowledge of quality matters among Icelandic students and inspire their participation. This is a unique opportunity to improve the quality of higher education in Iceland.
There are three available seats in the Committee.

If you wish for further information you can contact Aldís Mjöll Geirsdóttir, the Quality Officer of LÍS. Email: aldismjoll@gmail.com.

 

Legislative Committee

The Legislative Committee reviews LÍS´s standing orders and procedures each year. It must be ensured that the standing orders are in line with the work of the organization and also that the organization follows them in full. The Legislative Committee prepares amendments to the standing orders and proposes them to the Representative council. If they approve of the amendments, they get sent to the General Assembly for confirmation. Therefore the Legislative committee provides a great opportunity improve the efficiency and general work of the association. The Legislative Committee wishes for applicants interested in law and legal amendments. Knowledge of law is not necessary, but beneficial. There are three available seats in the committee.

For further information you can contact Teitur Erlingsson, the Vice-Chairperson of LÍS. Email: teiturerl@gmail.com.

 

The Finance Committee

The Finance Committee provides financial oversight for LÍS  as well as funding for the Union and its biggest events. The Committee takes care of building up and maintaining cooperation between the Union and companies through service contracts or grants as well as working on grant applications within bigger companies. LÍS hosts an annual general assembly attended by delegates from its member unions. It is therefore a big task of the Committee to provide funding for that through grants. There are also other exciting projects coming up, such as the  Three interested individuals are wanted to sit in the Committee along with the Financial Officer.

If you wish for further information you can contact Kristín Þóra Jónsdóttir, the Financial Officer of LÍS. Email: kristinj16@bifrost.is


 

The International Committee

The International Committee is responsible for the international obligations of LÍS. It gathers knowledge from foreign student unions and brings that knowledge back to Iceland. In the coming academic year, the Committee will undertake preparatory work and processing around all international events that LÍS delegates attend, as well as working with other LÍS committees on projects of corresponding topics. The International Committee will work on updating the international policy of LÍS. There are four available seats in the committee.

If you wish for further information you can contact Salka Sigurðardóttir, the International Officer of LÍS. Email: salka15@ru.is

 

Marketing Committee

The Marketing Committee aims to bring the union forward within the Icelandic community and especially the university community. The committee manages the union’s website and social media. Experience and/or knowledge of graphic design, writing and/or social media is an advantage. The Marketing Committee plans and executes all event of the union. That includes organizing events concerning students’ rights, the general assembly, various entertainment events, the birthday of LÍS and more.

If you wish for further information you can contact Sandra Rún Jónsdóttir the Marketing Officer of LÍS. Email: sandrarjons@gmail.com.

 

The Equal Rights Committee

The Equal Rights Committee is involved in and responsible for tasks and events that LÍS undertakes that involve equality affairs. The Committee is responsible for overseeing that equality is implemented in all of LÍS’ affairs and shall guide and advise the Executive Committee of LÍS in equality matters.
This working year will be exciting and busy with the writing of LÍS’ Equal Rights Policy, the first policy on equal rights that every student and Icelandic student abroad own a part in. The committee will be working with the Equal Rights Committees and Officers of member unions as well as participating in other projects.

If you wish for further information you can contact Sonja Björg Jóhannsdóttir, the Equal Rights Officer of LÍS. Email: sonjaj14@ru.is

Previous
Previous

Hágæði í háskólum og nærumhverfi stúdenta, eða hvað?

Next
Next

LÍS funda með stjórnendum Student Refugees í Danmörku